4.4.2009 | 10:20
Jæja... hvenær ætli ég fái blöðin??
Eins og áður hefur komið fram þá er Fréttablaðið ekki borið í í Tungunni. Mér finnst fátt betra en að lesa blöðin yfir kaffinu, sérstaklega um helgar. Ákvað því að splæsa á mig Mogganum... 3000 kall á mánuði og já já.. Hjössi splæsir.... En nei nei:
Athugasemdir
Þú getur komið til mín daglega og fengið dagsgamallt blað með þér í sveitina..................og það frítt!
Geiri 4.4.2009 kl. 13:37
Þetta þýðir bara að þú þarft að fá þér aukavinnu sem blaðberi, þér yrði örugglega tekið fagnandi þarna í sveitinni! Geturðu ekki tekið köttinn með þér í morgungöngu?! :)
Gunnþóra 5.4.2009 kl. 05:42
Eða bara flutt í Hafnarfjörðinn, þeir bera út blöðin þar
Nonni 5.4.2009 kl. 22:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.