Yfirlýsing á alnetinu...

Eins og mörg ykkar vita þá byrjaði ég í átaki fyrir nokkrum vikum.

Jónsi Stebba sem er með mér í átakinu kom með yfirlýsingu í gær í kjölfars lélegrar mælingar hjá BC Bigga:

"Ég – undirritaður – hef ákveðið að taka mér frí frá neyslu áfeng is í nóvember og desember 2008. Hér er átt við að ég mun ekki fá mér eitt einasta glas af léttu víni, bjór eða sterku víni fram til 19. desember 2008 að einni undantekningu þó en það er 29. nóvember næstkomandi.

Þetta er virðingarvert framtak hjá Jónsa, svo eitt er víst.. Ég veit að ég er búinn að kúka upp á bak hingað til. Hef ekki æft neitt. Tekið mig á í mataræðinu en ég hef ekki getað neitað mér um bjórinn! Var að koma úr helgarferð þar sem ég náði að innbyrða meira áfengi á einni helgi en Boot Camp-Biggi hefur gert 5-6 árin.... segir hann sjálfur. Burt séð frá áfenginu þá er það á hreinu að þetta átak er hreint út sagt hlægilegt, hvað mig varðar. Þetta hefur hingað til ekki verið neitt helvítis átak... Jú jú ég tala mikið um að vera í átaki en hvað hefur maður gert... ikke en skid!

Ég get því ekki annað en tekið undir með Jóni Viðari.

 

Ég mun ekki drekka áfangi fram til 19. desember.

 

Ég veit að ég á eftir að sjá eftir að hafa sent þetta. Þýðir samt ekki að fara í átak og gera bara ekki neitt. Aðgerðarleysi mitt síðustu daga, er refsivert og það þýðir engan helvítis bjór inn fyrir mínar varir.

Þá er þetta orðið opinbert!!! Svei mér þá.. mig langar strax í einn kaldan....Crying


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HOMMI!!!

Siggi T 21.10.2008 kl. 10:12

2 identicon

Uss nú verður þú leiðinlegur, í húsbyggingum og hættir í áfenginu. Sjáumst hressir 19. des :)

 Annars set ég bráðlega myndir á alnetið sem staðfesta þessa bjórdrykkju þína um helgina ;)

Örvar 21.10.2008 kl. 10:29

3 Smámynd: Hjörtur Örn Arnarson

Þetta er vissulega hommalegt... Tek undir það Svanni minn!!!! En svona er þetta bara...

Hjörtur Örn Arnarson, 21.10.2008 kl. 10:49

4 identicon

Jamm, hér er mikið um yfirlýsingar! Drakkstu eitthvað mikið í Köben? Ekki varð ég vör við það! Ég á meira að segja mynd af hálf-fullum bjór sem þú skildir eftir á knæpu einni. Bjór sem þú yfirgafst til þess að fara uppá hótelherbergi og hvíla þig - LANGT á undan þessum hörðustu!

Hildur 21.10.2008 kl. 14:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband