30.3.2008 | 16:16
Skepnur
Get ekki annað en tekið smá tuðhorn núna. Var að mæla út í hrauni við Krísuvíkurveg (Laufhöfðahraun). Ekki frásögufærandi nema að ég labba þar upp að þvottavél sem skilin hafði verið eftir út í miðju hrauni. Þetta eru nú meiru vesalingarnir sem gera svona. Er alveg ómögulegt að fara með þetta í sorpu? Svona lið fær ekki háa einkunn hjá Hjössanum!!
Athugasemdir
Loksins að það kom eitthvað nýtt hér inn en gat verið að það væri tuð! hihi
Þetta eru ábyggilega Pólverjar...vita ekkert hvar Sorpa er....ok nei djók!! haha
Tinna 30.3.2008 kl. 17:16
Hjörtanlega sammála þér kæri frændi.....svona gerir maður ekki.
Guðni Már Henningsson, 30.3.2008 kl. 20:11
Leyndist ekki falin myndavél þarna einhvers staðar....?!
Gunnþóra 31.3.2008 kl. 09:38
Flott mynd. Fallegt að sjá svona einmana þvottavél í eyðimörkinni...
Búddi 31.3.2008 kl. 12:00
Þarna er gott nýyrði á ferðinni.. að vera Hjörtanlega sammála mér!!! Vel mælt Mási.
Hjörtur Örn Arnarson, 31.3.2008 kl. 12:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.