8.12.2007 | 10:09
Vaknað upp við vondan draum? Eða góðan??
Já mjög rólegt föstudagskvöld hjá mér og krökkunum í gær. Klara var á jólahlaðborði með leikskólanum og við 3 bara heima í afslappelsi. Eða allaveganna fram á nótt.. kl 1:30 vaknaði ég upp við mikil læti. Sumir vildu kalla þetta vondan draum en ef við spáum í þessu þá er þetta ekki alveg svo slæmt. Hingað ruddust inn hrúga af huggulegum konum sem allar voru í miklu stuði eftir jólahlaðborð kvöldsins. Kvöldið virtist hafa snúist um "samlíf og allt því tengdu" og var þetta því umræðuefnið og stemmingin þegar þær komu. Myndi segja ykkur frá nokkrum kommentum sem ég fékk að heyra ef það væru ekki ungir saklausir lesendur hér á þessu bloggi mínu!!! Í staðinn fyrir "happy ending" þá þurfti ég bara að skutla skvísunum heim seinna um nóttina....
Stelpurnar á leið í spóahöfðann!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.